Rigningartíminn byrjadi seinna en vanalega í ár en hefur núna lagst yfir okkur med fullum thunga. Thad er ekki thar med sagt ad thad sé ekki glampandi sólskin. En thad má búast vid hellidembu hvenaer sem er. Jafnvel thrumum og eldingum. Thad ringdi svo hressilega um daginn ad vatnid lak stodugt inn í thann hluta íbudarinnar sem hefur ekkert yfir sér nema bárujárnsplotur. Thar med talid herbergid mitt, sem var vadandi fullt af vatni. Svo kom HAGLÉL (tharf varla ad taka fram ads ég hef ekki séd thad ádur í Ekvador) og vid thurftum ad oskra til thessa ad heyra hvort í odru. Svo fór rafmagnid audvitad í sama mund og vid bordudum maís og kartoflur vid kertaljós inni í eldhúsi.
Sáum myndir af gosinu heima á CNN en espanol. Pedro hafi nákvaemlega engan áhuga á thessu eldgosi thegar ég var ad reyna ad fraeda hann um thetta. Thad var kannski ekki fyrr en hann sá fréttirnar sem hann áttadi sig á thví um hvad ég var ad tala. "Chuuuuta!" sagdi hann. Í kjolfarid fylgdu fréttir af thví ad hálf Evrópa vaeri strand og Heathrow lokadur. Thá stód honum ekki á sama. Held hann hafi mestan áhuga á fréttum thar sem vélar koma einhvern veginn vid sogu. Vid erum ordnir bara nokkud gódir félagar og núna keyrir hann mig frítt á leigubílnum thegar ég vil. Maria bídur aesispennt eftir thví ad ég baki súkkuladikoku handa lidinu. Thad hefur ordid smá tof á thví vegna thess ad thad virtist hvorki vera til kakó né súkkuladi í Collaquí. En thad kemur at thessu, hún er thegar búin ad bjóda gronnunum í "mat".
Ég fór sídustu helgi aftur til Centro Histórico í nordurhluta Quito til ad tékka á basilikunni. Thar er haegt ad fara alla leid upp í haesta turn og fá frábaert útsýni yfir Quito. Svo eru steypt utan á hana dýr sem ég hef aldrei ádur séd á kirkju. Froskar, mauraetur, górillur, hlébardar. Jú neim itt. Thurftum ad fara tvisvar vegna thess ad hún var lokud í fyrra skiptid og opnunartíminn virdist vera undir einhverjum furdulegum gedthóttaákvordunum kominn. Svo klifrudum vid upp í annan og haerri tind, fjallid Pichincha sem liggur vestan af Quito. Tókum Télepherico sem er einskonar skídalyfta upp í fjallid (okkur var sagt ad thad vaeru einhver glaepagengi tharna í fjallshlídinni thó mér finnist thad hljóma frekar fáránlega) og gengum restina, thví midur í thoku svo vid sáum ekki mikid yfir borgina.
Ad lokum ... Ekvador kostir og gallar:
Plús: Allir eru tilbúnir ad hjálpa thér vid hvad sem er, hef gert tilraunir med thetta og hordustu ponkarar reynast bara vera til alls reidubúnir (ollum ad óvorum).
Mínus: Thad er thjódaríthrótt ad ridjast fram úr í rodum. Fólk bara gengur beint í veg fyrir thig á veitingahúsinu og byrjar ad panta. Heilu sex manna fjolskyldurnar eru bara maettar fremst í rodina einn, tveir og bingó.
Plús: Ekvador búar eru léttari í lund en íslendingar og hlaeja og grínast miklu meira.
Mínus: Kaerulausari, sorrí, thad er alveg nokkud til í thví.
Plús: Almenningssamgongur og taxar er hvort tveggja mjog ódýrt...
Mínus:...en their keyra algjorlega eins og brjálaedingar sumir. Ef einhver heldur ad thad sé barbarismi í umferdinni heima...
Plús: Vidbjódslega gott úrval af ógedslega gódum og ferskum ávoxtum. Bjuggum til ávaxta frostpinna í sídustu viku og their eru vidurstyggilega gódir.
Mínus: Ekvador er hid eina sanna bananalýdveldi (kannski olíu- og bananalýdveldi í dag). Spilling er allsrádandi eftir thví sem Mónica enskukennari segir mér. Menn thurfa helst ad thekkja einhvern í sendrádinu eda fyrirtaekinu til ad fá stodur. Ad thessu leyti eru thetta svipad og heima. Og jú, fjármálin eru líka í rúst.
miðvikudagur, 21. apríl 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd