föstudagur, 26. mars 2010

Ekvador, mitad del mundo

Thá er ég kominn í frí. Dios mio, thetta hefur verid fáránleg vika. Thetta var prófavika hjá krokkunum og reyndist audvitad adallega keppni í thví hver er bestur ad svindla. Einn í thridja bekkur var svo ákafur í svindlinu ad hann kóperadi óvart líka nafnid á theim sem hann var ad kíkja hjá. Greip annan vid kennarabordid í óda onn ad kópera svor úr staerdfraediprófinu. Hann fékk mjog góda einkunn. Svo tók ég eftir thví ad allur fjórdi bekkur gerdi nákvaemlega somu villunna á sínu prófi, humm.
Eins og thad hafi ekki verid nóg ad gera út af prófunum ákvad logreglan ad gera úttekt á skólanum thessa vikuna vegna thessa ad einn kennari hefur verid til vandraeda (gengur allt vel fyrir utan einstaka málsóknir milli kennara, forum ekkert nánar út í thad). Thad var thó gefid frí á fostudeginum og vid fórum med kennurunum í sundlaug, sauna og hádegismat í Yaroqui vegna thess ad tveir kennarar eru á forum (aftur málsóknirnar, en forum ekkert nánar út í thad). Bordudum maísstongla og haug af kjoti og baunum og drukkum bjór í heita pottinum. Fórum líka í Ecovalley sem er Ekvadorska útgafan af strandblaki. Samt eiginlega alveg nákvaemlega eins.
Einn kennarinn hafdi séd fréttir af eldgosinu heima í fréttunum og var ad spyrja mig út í thetta.
- Kannski verdur bara komid alveg nýtt Ísland thegar thú kemur heim, sagdi hann.
Thetta thótti alveg rosalega fyndid. Alveg rosalega. Thad er miklu meira hlegid í Ekvador en heima, og miklu haerra. Thad eru allskonar djókar í gangi. Lena kom med koku í skólann um daginn í tilefni af afmaelinu hans Lukas og skólastjórinn segist hafa kallad nafnid hennar upp úr svefni á hverri nóttu sídan. Thetta thykir alveg rosalega fyndid. Alveg rosalega.
Ég fór med hinum sjálfbodalidunum um daginn og tékkadi á Mitad del mundo. Minnismerkid og svaedid kring var mjog fallegt. Thóttist nokkud gódur eftir ad hafa nád mynd af mér vid midbaug thangad til Leslie benti mér á ad thetta vaeri "fake". Their hefdu byggt minnismerkid og málad línuna tharna vegna thess ad thad var hradbraut á hinum raunverulega midbaug. Enginn í Mitad del mundo vildi kannast vid at thetta vaeri rétt en Lonely Planet var á odru máli. Gengum nokkur hundrud metra og fundum (kannski, vonandi) hinn raunverulega midbaug. Thad voru bara tveir thrír túristar thar. Held ég hafi gengid yfir midbaug, veit thad samt ekki.
Á kvoldin er stundum lítid ad gera heima annad en ad lesa eda hlusta á tónlist, kannski leika vid Roberto. Nema thú viljir sokkva í thad hyldýpi lágmenningar sem kallast Ekvadorska sjónvarpid (ad minnsta kost eftir klukkan átta á vissum stodvum, madur má ekki alhaefa). Thar er á kvoldin bodid upp á gaedaefni á bord vid La Boca Loca (Klikkadi kjafturinn) og La Gente (Fraega fólkid) thar sem allar nýjustu breytingar í ástarlífi Hollywoodhysksins er krufdar til mergjar (eda allavega farid svona lauslega yfir thaer). Svo eru thad sápurnar, sem eru samt verd ég ad vidurkenna nett skemmtilegar thokk sé hallaerislegu dramatíkinni. "La mala" (vonda konan) í La favorita er umraeddasta persónan á heimilinu. Hún svífst einskis til thess ad fá sínu fram. Á enn eftir ad sjá thátt thar sem hún gerir ekki ad minnsta kosti tilraun til ad drepa einhverjar af hinum persónunum. Ninos ricos, padres obres (Rík born, fátaekir foreldrar) er líka gífurlega vinsael. Pabbinn seldi húsid undan bornunum sínum án thess ad láta thau vita í sídasta thaetti. Hvernig thetta er haegt veit ég ekki.
Mirella, hóst systir mín, er onnum kafin vid ad reyna ad klára námid sitt og fá kennsluréttindi og kemur heim seint á kvoldin. Skil svosem vel ad hún vilji sokkva sér ofan í sápurnar (eda svona naestum thvi). Thad er mikid hugsad um heilsuna á heimilinu. Maria staerir sig af thvi ad setja aldrei sykur út í ávaxtasafana og Pedro hvetur okkur til ad thakka gudi fyrir heilsuna nánast daglega. Hann fraeddi mig um thad hvernig matarmenningin í Ekvador hefur breyst á sídustu tuttugu árum. Fólkid á strondinni bordadi víst ekki neitt nema fisk og banana í den. Hann hafdi sjálfur varla bragdad á fisk thegar hann flutti thangad um tvítugt. Nú eru bara allir ad háma í sig fisk. Hann taladi um thetta eins og kraftaverk. Hann er hardduglegur, vinnur dag og nótt og thvaer bílinn thess á milli. Og Maria er í búdinni eda eldhúsinu. Thad er hver dagur odrum líkur. Kannski thess vegna sem tíminn lídur svona hratt og ég verd brádum hálfnadur!

0 comments: