fimmtudagur, 7. janúar 2010
Blogg í Ecuador
Jæja, fyrst ég er aftur á leið til úgglanda verður auðvitað að hleypa aftur lífi í bloggið. Mun blogga hér um dvölina í Ecuador, en þar verð ég frá janúar fram í júlí. Veit ekki hvort ég get póstað myndum inn hérna líka. Ferðaundirbúningur gengur vel og þetta er bara spurning um nokkrar reddingar (vona ég). Þannig að ef einhver hefur áhyggjur af því hvort ég sé enn með sönsum eða sé sokkinn í botnlaust þunglyndi og gargandi félagslega einangrun, þá getur hann lesið um þær hörmungar hér. :) Hasta la vista.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd